Um Óð

Sviðslistahópurinn Óður neitar að geyma óperur í glerkössum. Þau vilja miklu frekar taka þær upp, hrista af þeim rykið og leika sér að þeim, pota í óskrifaðar reglur og skemmta sér og öðrum.

Óður vann til Grímuverðlauna 2023 fyrir starf sitt, var útnefndur Listhópur Reykjavíkur 2024 og var tilnefndur sem flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2024.

Óður var stofnaður árið 2021. Meðlimir hópsins vildu setja upp þær óperusýningar sem þau vildu sjálf sækja og á sama tíma reyna að útrýma þeim háa þröskuldi sem almennir áhorfendur upplifa gagnvart forminu. Í forgrunni sýninga Óðs er nálægð við áhorfendur og einlæg túlkun á tungumáli sem áhorfendur skilja.

Allar sýningar Óðs eru á íslensku í þýðingu sviðslistahópsins. Óður einsetur sér að setja upp alþýðlegar sýningar með húmor og jarðtengingu að leiðarljósi. Útkoman er skemmtun sem allir geta notið og haft gaman af.

Hópurinn

Áslákur Ingvarsson

Verkefnastjóri
Baritón

Ragnar Pétur Jóhannsson

Meðstjórnandi
Bassi

„Listamennirnir sem mynda Óð eru líka einstaklega færir. Þeim tekst á undraverðan hátt að ná kjarnanum úr þeim óperuverkum sem þau kjósa að taka fyrir og færa þau áhorfendum á nýstárlegan og sérlega aðgengilegan hátt.“

Steingerður Steinarsdóttir

Lifðu núna