Sigurður Helgi

Tónlistarstjóri

Sigurður Helgi

Sigurður Helgi lauk framhaldsprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri 2004 og BM gráðu frá Berklee College of Music í Boston 2011 með aðaláherslu á hljómsveitarstjórn, kvikmyndatónsmíðar og píanóleik.

Hann hefur starfað jöfnum höndum sem klassískur og rytmískur píanóleikari ásamt því að stjórna, kenna, útsetja og semja. Hann hefur komið að ýmsum óperu- og söngleikjauppfærslum hjá áhuga- og atvinnuleikfélögum í gegnum tíðina, meðal annars sem tónlistarstjóri í sýningum Sviðslistahópsins Óðs á óperunum Ástardrykknum, Don Pasquale, og Póst-Jóni í Þjóðleikhúskjallaranum á árunum 2021-2024.

Sigurður Helgi hefur stjórnað Karlakór Kópavogs frá árinu 2022.

Hlutverk í uppsetningum Óðs:
 

ÁSTARDRYKKURINN
           – Tónlistarstjóri
           – Píanóleikari

DON PASQUALE
           – Tónlistarstjóri
           – Píanóleikari

PÓST-JÓN
           – Tónlistarstjóri
           – Píanóleikari