„Yndisleg nánd og dýpt í La bohème“

Steingerður Steinarsdóttir
„Listamennirnir sem mynda Óð eru líka einstaklega færir. Þeim tekst á undraverðan hátt að ná kjarnanum úr þeim óperuverkum sem þau kjósa að taka fyrir og færa þau áhorfendum á nýstárlegan og sérlega aðgengilegan hátt. Þau hafa líka margsýnt hversu leikin þau eru í að skila kímni og gamansemi til að mynda í Rakaranum í Sevilla og Don Pasquale. Í þessu verki ná þau að nýta alla breidd hæfileika sinna og skila glimrandi flottri sýningu.“
„Í heild er þetta heillandi sýning og yndisleg upplifun og Sviðslistahópurinn Óður á miklar þakkir skildar fyrir færa okkur óperur á þennan einstaka og skemmtilega hátt sem þeim er einum lagið […] áhrifamikil og falleg sýning.“
„Gæsahúð í óperunni“

Díana Sjöfn Jóhannsdóttir
„Ég fagna því innilega að það sé kominn metnaðarfullur hópur sem að setur upp dáðar óperur á íslensku og það í svona fallegri og vandaðri þýðingu. Ég vona að ég fái að sjá fleira frá Óði sem allra fyrst. La Bohéme er frábær skemmtun með dásamlegum söng og leik.“
„Og hversu lipur og vel ígrunduð þýðing er þarna á ferðinni eftir þau Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason. Þau eiga mikið lof skilið fyrir þessa þýðingu því ég get rétt svo ímyndað mér að það hafi ekki verið lítið verkefni að ná réttum orðum fyrir tónlistina og hrynjandann. Húmor verksins náði afar vel í gegn og íslenskan hljómaði fallega og áreynslulaust.“
„Það sem mig langaði’ að segja en ekki sagði, segi ég núna, áður en það er um seinan.“

Silja Aðalsteinsdóttir
„Það er lofsvert af Óði að dekra við aðdáendur sína með því að leggja vinnu í vandaða þýðingu og hefur orðið öðrum fyrirmynd.“
„Heildstætt og fallegt listaverk“

Trausti Ólafsson
„Textarnir sem Sólveig og Þórhallur Auður leggja söngvurunum í munn eru skínandi vel samdir og áhorfendur skilja hvert orð sem sungið er. [La bohème] bar öll helstu einkenni Óðs, léttleika og sköpunargleði með dálítið alvarlegum undirtóni sem áhorfandinn skynjar allan tímann mitt í allri glaðværðinni.“
„Búningar og hreyfingar söngvaranna í uppfærslu Óðs eru heildstætt listaverk, stundum svo fallegt að manni finnst maður vera að horfa á verk eftir afbragðs málara. Í stöku atriðum undirstrikaði sviðsetning Tómasar Helga tengsl persónanna og innri átök þeirra með áhrifamiklum hætti. Hið sjónræna sagði að minnsta kosti jafnmikið og tónlistin og orðin.“
„Ég ætla ekki að útskýra töfrana nánar. Þið þurfið að drífa ykkur að sjá og heyra sýninguna til að upplifa þann galdur sem lætur manni líða í brjóstinu eins og maður sé lítið barn sem aldrei áður hefur í leikhús komið.“
La bohème ★★★★ „Má ég leiða þig mín kæra …“

Magnús Lyngdal Magnússon
„Liðsmenn Óðs eru til fyrirmyndar. Sýningar Óðs hafa fest sig rækilega í sessi“